• Rank #
  • Premiered: Sep 2020
  • Episodes: 64
  • Followers: 0
  • Running
  • Stöð 2
  • Saturday at 19
  • Family Game show

Seasons:

You need to be logged in to mark episodes as watched. Log in or sign up.

Season 4
4x1
KR - Valur
Episode overview
Air date
Sep 02, 2023
Fjórða þáttaröð af Kviss hefst með alvöru Reykjavíkurslag á milli KR og Vals. Í liði KR-inga eru tónlistarmaðurinn Páll Óskar og leikkonan Saga Garðarsdóttir en Valsliðið skipa tónlistarmennirnir og bræðurnir Unnsteinn Manuel og Logi Pedro.
4x2
Dalvík - Færeyjar
Episode overview
Air date
Sep 09, 2023
Færeyjar mæta til leiks í Kviss og taka á móti Dalvík í sprenghlægilegum þætti. Færeyska landsliðið skipa söngvarinn Jógvan Hansen og fjölmiðlakonan Ósk Gunnarsdóttir en í liði Dalvíkinga eru tónlistarmennirnir Friðrik Ómar og Eyþór Ingi.
4x3
UMFA - Breiðablik
Episode overview
Air date
Sep 16, 2023
Afturelding, ríkjandi meistari frá síðustu þáttaröð, sendir tónlistarkonurnar GDRN og Stefaníu Svavars til leiks í ár. Þær taka á móti Breiðabliki en í Kópavogsliðinu eru sjónvarpskonan Kristjana Arnarsdóttir og leikkonan Svandís Dóra Einarsdóttir.
4x4
ÍA - Leiknir
Episode overview
Air date
Sep 23, 2023
Skaginn mætir Breiðhyltingum. Í liði Leiknis eru sjónvarpsmaðurinn Sindri Sindrason og leikkonan Dóra Jóhannsdóttir en lið ÍA skipa sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og fótboltamaðurinn Arnór Smárason.
4x5
Fjölnir - Þróttur
Episode overview
Air date
Sep 30, 2023
Leikkonan Júlíanna Sara Gunnarsdóttir, einn af litríkustu keppendum síðustu þáttaraðar, mætir til leiks að nýju með tónlistarmanninn Kristmund Axel sér við hlið. Í liði Þróttar eru leikkonurnar María Dögg Nelson og Ásthildur Úa Sigurðardóttir.
4x6
Tindastóll - Vestri
Episode overview
Air date
Oct 07, 2023
Sannkallaður tónlistarslagur. Í liði Vestra frá Ísafirði eru Helgi Björns og Sigga Beinteins en lið andstæðinga þeirra, Tindastóls, skipa Arnar Freyr og Helgi Sæmundur úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur.
4x7
FH - KA
Episode overview
Air date
Oct 14, 2023
Sprenghlægilegur þáttur þar sem FH mætir KA. Lið Hafnfirðinga skipa tónlistarmaðurinn Patrik Atlason og leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir en í liði Akureyringa eru tónlistarmaðurinn Magni .. show full overview
4x8
Fylkir - ÍR
Episode overview
Air date
Oct 21, 2023
Alvöru nágrannaslagur Árbæinga og Breiðhyltinga. Í liði Fylkis eru rapparinn Bent og stjórnmálakonan Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir en ÍR-ingar eru rapparinn Emmsjé Gauti og sjónvarpskonan Viktoría Hermannsdóttir.
4x9
Fjölnir - Dalvík
Episode overview
Air date
Oct 28, 2023
Fjölnir og Dalvík mætast í fyrstu viðureigninni í 8-liða úrslitum í bráðfyndnum og spennandi þætti. Í liði Grafarvogsbúa eru leikkonan Júlíana Sara og tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel .. show full overview
4x10
ÍR - KA
Episode overview
Air date
Nov 04, 2023
ÍR og KA mætast í hörkuviðureign í 8-liða úrslitum. Í liði Breiðhyltinga eru tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti og sjónvarpskonan Viktoría Hermannsdóttir en í liði Akureyringa eru tónlistarmaðurinn Magni og grínistinn og handritshöfundurinn Karen Björg.
4x11
Vestri - KR
Episode overview
Air date
Nov 11, 2023
Vesturbæingar og Vestfirðingar eigast við í stórskemmtilegri viðureign. Söngkonan Diljá kemur ný inn í lið Vestra og keppir við hlið Siggu Beinteins. Í liði KR eru tónlistarmaðurinn Páll Óskar og leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir.
4x12
ÍA - UMFA
Episode overview
Air date
Nov 18, 2023
Afturelding og ÍA mætast í hörkuslag í síðustu viðureigninni í 8-liða úrslitum. Í liði Skagans eru sjónvarpskonan Sigrún Ósk og fótboltamaðurinn Arnór Smárason en í liði Mosfellinga eru tónlistarkonurnar GDRN og Stefanía Svavarsdóttir.
4x13
KR - ÍA
Episode overview
Air date
Nov 25, 2023
Undanúrslitin byrja með látum en í fyrri viðureigninni eigast við fornir fjendur, KR og ÍA. KR hefur tvívegis áður farið í úrslit Kviss en ÍA aldrei. Í liði KR eru Páll Óskar og Saga Garðarsdóttir en í liði ÍA eru Sigrún Ósk og Arnór Smárason.
4x14
Fjölnir - ÍR
Episode overview
Air date
Dec 02, 2023
Í seinni undanúrslitaviðureigninni mætast ÍR og Fjölnir en hvorugt liðið hefur áður náð svona langt í Kviss. Í liði Breiðhyltinga eru Emmsjé Gauti og Viktoría Hermanns en í liði Grafarvogsbúa eru Júlíana Sara og Kristmundur Axel.
4x15 Season finale
Úrslitaþáttur
Episode overview
Air date
Dec 09, 2023
Loka þátturinn þar sem Kviss sigurvegari er krýndur

If there are missing episodes or banners (and they exist on TheTVDB) you can request an automatic full show update:

Request show update

Characters