You need to be logged in to mark episodes as watched. Log in or sign up.
Season 3
Ný íslensk rannsókn á höfuðáverkum íþróttakvenna sýnir að höfuðhögg og jafnvel heilahristingur, hefur veruleg áhrif á stóran hóp íþróttakvenna sem glíma við erfiðar afleiðingar þeirra. Margar hverjar verða aldrei samar.
Ný íslensk rannsókn á höfuðáverkum íþróttakvenna sýnir að höfuðhögg og jafnvel heilahristingur, hefur veruleg áhrif á stóran hóp íþróttakvenna sem glíma við erfiðar afleiðingar þeirra. Margar hverjar verða aldrei samar.
Flestir taka fækkun skordýra eflaust sem gleðitíðindum enda eru þau ekki sérlega vinsæl dýr. En komumst við af án þeirra? Svo eru það uppljóstrarar sem koma misnotkun valds upp á
.. show full overview
Flestir taka fækkun skordýra eflaust sem gleðitíðindum enda eru þau ekki sérlega vinsæl dýr. En komumst við af án þeirra? Svo eru það uppljóstrarar sem koma misnotkun valds upp á yfirborðið í þágu almennings. Héraðssaksóknari segir að það þurfi að tryggja vernd þeirra í lögum.
Aukinn hiti hefur færst í aðgerðir stórveldanna sem vilja seilast til áhrifa á norðurslóðum. Í því felast tækifæri en líka ógnir fyrir Íslendinga. Við skoðum einnig umhverfi
.. show full overview
Aukinn hiti hefur færst í aðgerðir stórveldanna sem vilja seilast til áhrifa á norðurslóðum. Í því felast tækifæri en líka ógnir fyrir Íslendinga. Við skoðum einnig umhverfi veitingahúsareksturs á Íslandi í dag og fylgjum eftir starfsfólki Aalto Bistro vinna síðustu starfsviku veitingastaðarins.
Málfríður Þórðardóttir var heilsuhraust og virk þar til hún leitaði til læknis í fyrra út af smávægilegum kvilla. Nú er hún með fulla örorku. Svo eru það tölvuleikir; Sígildur
.. show full overview
Málfríður Þórðardóttir var heilsuhraust og virk þar til hún leitaði til læknis í fyrra út af smávægilegum kvilla. Nú er hún með fulla örorku. Svo eru það tölvuleikir; Sígildur ásteytingarsteinn milli barna og foreldra. Hjá rafíþróttadeildum er tölvuleikjum skapað pláss fjarri unglingaherbergjum.
Jim Ratcliffe hefur stóraukið eignaumsvif sín á Norðausturlandi. En hversu mikið land á hann eiginlega og hvað finnst heimamönnum? Ekkert kerfi heldur utan um endurmenntun lækna og því
.. show full overview
Jim Ratcliffe hefur stóraukið eignaumsvif sín á Norðausturlandi. En hversu mikið land á hann eiginlega og hvað finnst heimamönnum? Ekkert kerfi heldur utan um endurmenntun lækna og því er alls óvíst að læknar uppfæri þekkingu sína sem er varla æskilegt í fagi þar sem þekking úreldist hratt.
Samherji hefur undanfarinn áratug greitt háttsettum stjórnmála- og embættismönnum í Namibíu hundruð milljóna í þeim tilgangi að komast yfir eftirsóttan kvóta. Þetta sýna gögn sem lekið
.. show full overview
Samherji hefur undanfarinn áratug greitt háttsettum stjórnmála- og embættismönnum í Namibíu hundruð milljóna í þeim tilgangi að komast yfir eftirsóttan kvóta. Þetta sýna gögn sem lekið var til Wikileaks og Kveikur hefur rannsakað undanfarið í samstarfi við Al Jazeera Investigates og Stundina.
Í þættinum voru viðbrögð við uppljóstrun Samherjaskjalanna skoðuð. Spillingarlögreglan í Namibíu hefur í rúmt ár rannsakað starfsemi Samherja í Namibíu og ásakanir um mútugreiðslur,
.. show full overview
Í þættinum voru viðbrögð við uppljóstrun Samherjaskjalanna skoðuð. Spillingarlögreglan í Namibíu hefur í rúmt ár rannsakað starfsemi Samherja í Namibíu og ásakanir um mútugreiðslur, fjársvik, skattsvik og peningaþvætti. Að umfangi er málið hið stærsta í sögu Namibíu. Þá beinir einn angi rannsóknarinnar, sem hafin er í Noregi vegna Samherjaskjalanna, sjónum að því hvernig þetta var yfir höfuð hægt. Horft er á það sem virðast vera veikar varnir og aðgerðir norska ríkisbankans DNB við peningaþvætti.
Þrátt fyrir að íbúar Árneshrepps hafi alla tíð verið samheldnir klýfur nú Hvalárvirkjun sveitarfélagið. Í sinni einföldustu mynd mætti segja að í umræðunni um virkjunina sé fólk annað
.. show full overview
Þrátt fyrir að íbúar Árneshrepps hafi alla tíð verið samheldnir klýfur nú Hvalárvirkjun sveitarfélagið. Í sinni einföldustu mynd mætti segja að í umræðunni um virkjunina sé fólk annað hvort með náttúrunni í liði eða byggð í landinu. En hvað stendur til að gera og hvað mælir með eða á móti virkjun?
Hverjar eru aðstæður flóttafólksins sem við vísum frá Íslandi og til Grikklands? Útlendingastofnun hefur ekki farið og kynnt sér ástandið á staðnum en telur ástandið viðunandi. Kveikur
.. show full overview
Hverjar eru aðstæður flóttafólksins sem við vísum frá Íslandi og til Grikklands? Útlendingastofnun hefur ekki farið og kynnt sér ástandið á staðnum en telur ástandið viðunandi. Kveikur fór til Grikklands og fylgdi meðal annars eftir manni sem vísað var frá Íslandi í janúar. Við tölum einnig við nýbakaða foreldra sem óttast að vera send frá Íslandi til Grikklands, þar sem ekkert bíður þeirra nema flóttamannabúðir.
Hvað gerist ef eldsumbrot hefjast á Reykjanesskaga? Kveikur skoðar svæðið þar sem fimm virk eldstöðvarkerfi eru staðsett, sem öll gætu gosið. Í seinni hluta þáttarins könnum við aðstæður
.. show full overview
Hvað gerist ef eldsumbrot hefjast á Reykjanesskaga? Kveikur skoðar svæðið þar sem fimm virk eldstöðvarkerfi eru staðsett, sem öll gætu gosið. Í seinni hluta þáttarins könnum við aðstæður í Moria flóttamannabúðunum á Lesbos í Grikklandi. Búðirnar eru taldar einar verstu flóttamannabúðir heims en í síðasta þætti kynntumst við fólki sem flúið hefur til Íslands eftir veru í búðunum.
Hrein íslensk orka. Þetta er ímynd sem íslensk fyrirtæki á borð við álver og gagnaver kynna. En stenst hún? Íslensk orkufyrirtæki hafa selt vottanir fyrir þessari hreinu orku úr landi í
.. show full overview
Hrein íslensk orka. Þetta er ímynd sem íslensk fyrirtæki á borð við álver og gagnaver kynna. En stenst hún? Íslensk orkufyrirtæki hafa selt vottanir fyrir þessari hreinu orku úr landi í stórum stíl. Kveikur kannar málið.
Við skoðum líka stöðu 32 þúsund ellilífeyrisþega því enn á ný er tekist á um skerðingar Tryggingastofnunar á ellilífeyrisgreiðslum. Nú um hvernig stofnunin stóð að því að gera upp skerðingar á greiðslum sem dæmdar hafa verið ólöglegar.
Sífellt fleiri Íslendingar velja grænmeti frekar en kjöt. Bændur sem reyna að brjótast út úr kerfinu standa einir. Hvert stefnir íslenskur landbúnaður? Við skoðum kerfið sem stýrir því
.. show full overview
Sífellt fleiri Íslendingar velja grænmeti frekar en kjöt. Bændur sem reyna að brjótast út úr kerfinu standa einir. Hvert stefnir íslenskur landbúnaður? Við skoðum kerfið sem stýrir því hvaða matur er framleiddur á Íslandi.
Í síðari hluta þáttarins veltum við því upp hvernig nútímastríð eru háð. Einu sinni þýddi stríð vopnaðar hersveitir sem ruddust yfir landamæri en ekki lengur. Þegar stríðið er falsfréttir eða tölvuhakk skipta landamæri engu máli.
Íslendingar hafa löngum stært sig af því að hér á landi sé engin stéttaskipting, allir séu jafnir og eigi jafna möguleika. Líklega vitum við þó betur. Tugþúsundir Íslendinga búa við
.. show full overview
Íslendingar hafa löngum stært sig af því að hér á landi sé engin stéttaskipting, allir séu jafnir og eigi jafna möguleika. Líklega vitum við þó betur. Tugþúsundir Íslendinga búa við fátækt sem takmarkar möguleika þeirra. En hvernig er að búa við fátækt, jafnvel allt sitt líf? Og hvernig er að alast upp í fátækt? Hvaða áhrif hefur fátækt á fólk og fjölskyldur?
Kveikur fjallar um COVID-19 í tvöföldum þætti og sérstakri vefútgáfu. Við förum til Ítalíu og sjáum hverjar afleiðingarnar þar eru, könnum viðbúnað íslenskra stjórnvalda og svörum spurningunni hvað er COVID-19.
Kveikur fjallar um COVID-19 í tvöföldum þætti og sérstakri vefútgáfu. Við förum til Ítalíu og sjáum hverjar afleiðingarnar þar eru, könnum viðbúnað íslenskra stjórnvalda og svörum spurningunni hvað er COVID-19.
Framkvæmdastjóri Upphafs, fasteignafélags GAMMA, þáði tugmilljóna króna ráðgjafagreiðslur frá byggingaverktaka sem vann milljarðaverkefni fyrir Upphaf. Lífeyrissjóðir töpuðu miklu á
.. show full overview
Framkvæmdastjóri Upphafs, fasteignafélags GAMMA, þáði tugmilljóna króna ráðgjafagreiðslur frá byggingaverktaka sem vann milljarðaverkefni fyrir Upphaf. Lífeyrissjóðir töpuðu miklu á fasteignafélaginu. Gögn sem Kveikur komst yfir urðu til þess að málið var kært til lögreglu.
Kórónuveiran dreifist enn hratt um heimsbyggðina. Á meðan leita vísindamenn logandi ljósi að lyfjum og bóluefni sem duga á veiruna. Vísindamaður Íslenskrar erfðagreiningar rannsakar veiruna heima hjá sér því hann er sjálfur með veikina.
Hagkerfi heimsins eru í uppnámi vegna faraldursins, og óvissan á Íslandi er alger. Farsóttin hefur gerbreytt daglegu lífi fólks á örskömmum tíma.
3x16
Farsóttin á Íslandi og í New York og hvalræði í Skagafirði
Episode overview
Alfriðaður hnúfubakur var eltur klukkustundum saman á Skagafirði haustið 2018 og skotið á hann. Kveikur fjallar um aðfarir sem hvalasérfræðingur segir pyntingar á dýri í neyð, og við
.. show full overview
Alfriðaður hnúfubakur var eltur klukkustundum saman á Skagafirði haustið 2018 og skotið á hann. Kveikur fjallar um aðfarir sem hvalasérfræðingur segir pyntingar á dýri í neyð, og við veltum upp spurningunni hvort yfirvöld geti rannsakað ásakanir um dýraníð þegar þau eru sjálf gerendur.
Gert er ráð fyrir að hápunkti kórónuveirufaraldursins verði náð síðar í vikunni, og erfiðast verður að manna Landspítalann þar sem tvöfalt til þrefalt fleiri starfsmenn þarf á COVID-deild en aðrar deildir.
Við fjöllum líka um ástandið í New York og tölum meðal annars við íslenskan smitsjúkdómalækni sem stýrir viðbrögðum á tveimur sjúkrahúsum í borginni. Við tölum svo við konu sem hefur búið í New York í sjö ár og situr nú heima hjá sér í hálfgerðu útgöngubanni, atvinnulaus.
Efnahagsóvissan vegna heimsfaraldursins er einna mest á Suðurnesjum, þar sem þúsundir manna hafa misst vinnuna, að hluta eða öllu leyti. Atvinnurekendur berjast við að halda fólki í
.. show full overview
Efnahagsóvissan vegna heimsfaraldursins er einna mest á Suðurnesjum, þar sem þúsundir manna hafa misst vinnuna, að hluta eða öllu leyti. Atvinnurekendur berjast við að halda fólki í vinnu í gegnum hlutabótaleið stjórnvalda, en segja um leið að enginn þoli þetta ástand til lengdar án þess að segja upp fólki.
Það eru ekki allar þjóðir jafn vel búnar undir heimsfaraldur og Ísland. Mörg þau lönd sem eru verst í stakk búin eru í Afríku sunnan Sahara, og þar blasir við allt annar veruleiki en á Vesturlöndum. Ekki aðeins eru heilbrigiðskerfin vanbúin, heldur efnhagskerfin líka. Hvaða áhrif hefur til dæmis útgöngubann á daglaunafólk sem kemst ekki út til að afla sér lífsviðurværis?
3x18
Season finale
Heimilisofbeldi í heimsfaraldri og eftirköst veikinnar
Episode overview
Heimilisofbeldi hefur aukist um 10% í kórónuveirufaraldrinum, samkvæmt tölum ríkislögreglustjóra. Þá hefur tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgað, og fleiri börn en áður hringja
.. show full overview
Heimilisofbeldi hefur aukist um 10% í kórónuveirufaraldrinum, samkvæmt tölum ríkislögreglustjóra. Þá hefur tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgað, og fleiri börn en áður hringja sjálf í barnavernd til að greina frá slæmum aðbúnaði sínum.
Þótt kórónuveiran greinist ekki lengur hjá mörgum sem veiktust af COVID-19 er í fæstum tilvikum hægt að segja að sjúklingarnir séu heilir heilsu. Margir lýsa lungnavandamálum, og ófáir sjá fram á vikur eða mánuði í endurhæfingu.
If there are missing episodes or banners (and they exist on TheTVDB) you can request an automatic full show update:
Request show update
Update requested