Você precisa estar logado para marcar um episódio como visto. Entrar ou registar.
Temporada 1
Þegar við elskum einhvern, búum með honum og förum samferða í gegnum lífið þá verðum ósjálfkrafa samvaxin. Hvað gerist þá þegar viðkomandi tekur allt í einu upp á því að deyja og hverfa
.. show full overview
Þegar við elskum einhvern, búum með honum og förum samferða í gegnum lífið þá verðum ósjálfkrafa samvaxin. Hvað gerist þá þegar viðkomandi tekur allt í einu upp á því að deyja og hverfa burt? Hvernig getum við byggt okkur upp á nýju? Getum við verið sorgmædd og hamingjusöm á sama tíma? Í þættinum hittum við fólk sem hefur tekist á við ástina og dauðann og unnið í því að finna lífshamingjuna að nýju.
Að missa barnið sitt – er það ekki stærsti og mesti ótti? Okkar versta martröð? Að missa barn sitt er án efa einn erfiðasti atburður í lífi okkar. Foreldrar sitja eftir með brostið
.. show full overview
Að missa barnið sitt – er það ekki stærsti og mesti ótti? Okkar versta martröð? Að missa barn sitt er án efa einn erfiðasti atburður í lífi okkar. Foreldrar sitja eftir með brostið hjarta og spurningar sem enginn getur svarað. Að missa barn breytir fólki til frambúðar. Hvernig vinnur fólk úr þessari sorg? Getur maður einhvern tímann orðið hamingusamur aftur? Í þessum þætti hittum við fólk sem hefur tekist á við þessa sorg og missi og lært að lifa upp á nýtt.
Fíkn er alvarlegur heilasjúkdómur af líffræðilegum toga sem oft leiðir til dauða. Það gleymist oft að þetta fólk sem deyr vegna ofneyslu á lyfjum og áfengi á foreldra, systkini, vini og
.. show full overview
Fíkn er alvarlegur heilasjúkdómur af líffræðilegum toga sem oft leiðir til dauða. Það gleymist oft að þetta fólk sem deyr vegna ofneyslu á lyfjum og áfengi á foreldra, systkini, vini og börn sem dragast inn í þessi veikindi. Þetta eru aðstandendur, stór, ósýnilegur hópur sem lifir í miklum ótta, kvíða og sorg. Hvernig upplifa börn þennan veruleika? Hvernig upplifa foreldrar, bræður og systur þessa sorg og þennan missi? Við ætlum að skoða það í þessum þætti.
Þau hafa fætt okkur og alið okkur upp, þau eru stoð okkar og stytta og þau gáfu okkur lífið. Þegar við erum börn þá trúum við því að foreldar okkar sé ódauðlegir. En það er ekki svo. Það
.. show full overview
Þau hafa fætt okkur og alið okkur upp, þau eru stoð okkar og stytta og þau gáfu okkur lífið. Þegar við erum börn þá trúum við því að foreldar okkar sé ódauðlegir. En það er ekki svo. Það er löng og ströng sorgarganga að missa foreldri. Börn þurfa lífsnauðsynlega foreldra en samt missa börn foreldra sína – og ótrúlegt en satt – það komast af. Við fáum nú að heyra sögur þar sem fólk missir foreldra sína, fer í gegnum óbærilega kvöl, angist og ringulreið en lærir svo að byggja líf sitt upp að nýju.
Af hverju? Hvers vegna? Hefði ég getað gert eitthvað? Hvers vegna gafstu upp? Svo ótal margar spurningar – en það eru engin svör. Í þessum þætti hittum við fólk sem hefur misst ástvini
.. show full overview
Af hverju? Hvers vegna? Hefði ég getað gert eitthvað? Hvers vegna gafstu upp? Svo ótal margar spurningar – en það eru engin svör. Í þessum þætti hittum við fólk sem hefur misst ástvini sína, móður, bróður og barn í sjálfsvígi. Þetta er óbærilegur sársauki. Þetta er eitthvað sem á ekki að vera hægt að komast í gegnum. En í þessum þætti hittum við fólk sem hefur tekist á við þessa sorg og byggt upp líf sitt að nýju.
Systkini eru oft nánasta fólkið í lífi okkar. Þetta er fólkið sem stendur okkur næst – þekkir okkur best. Þau eru stór hluti af okkur og þegar þetta fólk fellur frá, deyr einhver hluti
.. show full overview
Systkini eru oft nánasta fólkið í lífi okkar. Þetta er fólkið sem stendur okkur næst – þekkir okkur best. Þau eru stór hluti af okkur og þegar þetta fólk fellur frá, deyr einhver hluti af okkur um leið og allt breytist. Við stöndum bjargarlaus eftir og reynum að fóta okkur í nýjum veruleika. Í þættinum hittum við fólk sem hefur misst systkini og lært að fóta sig í nýjum veruleika.
Se faltam episódios ou banners (e eles existem no TheTVDB) você pode solicitar uma atualização automática :
Solicite uma atualização
Atualização solicitada