Musisz być zalogowany żeby oznaczyć odcinki jako obejrzane. Zaloguj Się albo zarejestruj się.
Sezon 1
Eiður Smári Guðjohnsen kom til Chelsea frá Bolton sumarið 2000. Eftir að hafa fengið fá tækifæri í byrjun tímabilsins fékk hann óvænt að byrja í stórleik gegn Liverpool og sló strax í
.. show full overview
Eiður Smári Guðjohnsen kom til Chelsea frá Bolton sumarið 2000. Eftir að hafa fengið fá tækifæri í byrjun tímabilsins fékk hann óvænt að byrja í stórleik gegn Liverpool og sló strax í gegn. Eiður rifjar upp byrjunina hjá Chelsea og samstarfið við Jimmy Floyd Hasselbaink og Gianfranco Zola.
Arnar Gunnlaugsson gekk til liðs við Bolton Wanderers fyrir tímabilið 1997-98 og spilaði sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni gegn Arsenal á Highbury. Arnar rifjar upp upphafið í enska
.. show full overview
Arnar Gunnlaugsson gekk til liðs við Bolton Wanderers fyrir tímabilið 1997-98 og spilaði sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni gegn Arsenal á Highbury. Arnar rifjar upp upphafið í enska boltanum og eftirminnilega leiki á Anfield, bæði með Bolton og Leicester.
Keflvíkingurinn Jóhann Birnir Guðmundsson er yngsti Íslendingurinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni. Hann var 21 árs, 8 mánaða og 5 daga gamall þegar hann spilaði fyrir Watford gegn Sunderland í ágúst 1999.
Keflvíkingurinn Jóhann Birnir Guðmundsson er yngsti Íslendingurinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni. Hann var 21 árs, 8 mánaða og 5 daga gamall þegar hann spilaði fyrir Watford gegn Sunderland í ágúst 1999.
Guðni Bergsson var aðeins þriðji Íslendingurinn til að spila í efstu deild í Englandi þegar hann kom til Tottenham haustið 1988. Guðni rifjar upp fyrstu skrefin í enska boltanum og
.. show full overview
Guðni Bergsson var aðeins þriðji Íslendingurinn til að spila í efstu deild í Englandi þegar hann kom til Tottenham haustið 1988. Guðni rifjar upp fyrstu skrefin í enska boltanum og skemmtilegan húmorinn hjá Tottenham með Paul Gascoigne fremstan í flokki.
Hermann Hreiðarsson mætti galvaskur í ensku úrvalsdeildina með Crystal Palace tímabilið 1997-98. Hann varð fljótt fastamaður í liðinu og vakti m.a. athygli fyrir frammistöðu sína gegn
.. show full overview
Hermann Hreiðarsson mætti galvaskur í ensku úrvalsdeildina með Crystal Palace tímabilið 1997-98. Hann varð fljótt fastamaður í liðinu og vakti m.a. athygli fyrir frammistöðu sína gegn Dennis Bergkamp hjá Arsenal sem var valinn besti leikmaður tímabilsins.
Gylfi Sigurðsson sló í gegn með Swansea sem lánsmaður frá Hoffenheim vorið 2012 og er eini Íslendingurinn sem hefur verið valinn leikmaður mánaðarins af Premier League. Gylfa bauðst að
.. show full overview
Gylfi Sigurðsson sló í gegn með Swansea sem lánsmaður frá Hoffenheim vorið 2012 og er eini Íslendingurinn sem hefur verið valinn leikmaður mánaðarins af Premier League. Gylfa bauðst að fylgja þjálfaranum til Liverpool en valdi frekar að fara til Tottenham.
Jóhannes Karl Guðjónsson var lánaður frá Real Betis á Spáni til Aston Villa í janúar 2003 og skoraði beint úr aukaspyrnu í sínum fyrsta leik. Jói Kalli vakti athygli fyrir langskot sín, enda aldrei hræddur við að láta vaða á markið.
Jóhannes Karl Guðjónsson var lánaður frá Real Betis á Spáni til Aston Villa í janúar 2003 og skoraði beint úr aukaspyrnu í sínum fyrsta leik. Jói Kalli vakti athygli fyrir langskot sín, enda aldrei hræddur við að láta vaða á markið.
Heiðar Helguson var keyptur til Watford fyrir metfé frá Lilleström í Noregi í janúar 2000 og fyrsti leikurinn var gegn Liverpool þar sem Heiðar vann hug og hjörtu stuðningsmanna. Heiðar
.. show full overview
Heiðar Helguson var keyptur til Watford fyrir metfé frá Lilleström í Noregi í janúar 2000 og fyrsti leikurinn var gegn Liverpool þar sem Heiðar vann hug og hjörtu stuðningsmanna. Heiðar rifjar upp erfirminnileg mörk og samstuð við Patrick Vieira sem vakti mikla athygli í Englandi.
Bjarni Guðjónsson var efnilegasti leikmaður Íslands árið 1996 og var boðið til reynslu hjá Real Madrid, Liverpool og Newcastle. Þrátt fyrir að vera stuðningsmaður Liverpool ákvað hann að
.. show full overview
Bjarni Guðjónsson var efnilegasti leikmaður Íslands árið 1996 og var boðið til reynslu hjá Real Madrid, Liverpool og Newcastle. Þrátt fyrir að vera stuðningsmaður Liverpool ákvað hann að velja Newcastle en áður en hann skrifaði undir var félagið búið að skipta um knattspyrnustjóra.
Þorvaldur Örlygsson kom til Nottingham Forest frá KA haustið 1989 og var settur beint inn í byrjunarliðið. Honum gekk þó erfiðlega að komast inn á völlinn þar sem enginn þekkti hann. Á
.. show full overview
Þorvaldur Örlygsson kom til Nottingham Forest frá KA haustið 1989 og var settur beint inn í byrjunarliðið. Honum gekk þó erfiðlega að komast inn á völlinn þar sem enginn þekkti hann. Á þessum tíma þurfti ekkert að gefa fyrirmæli um hvar hann ætti að spila, númerið réði því.
Guðni Bergsson var hættur í enska boltanum þegar hann fékk tilboð frá Bolton vorið 1995 og fyrsti leikurinn var úrslitaleikur á Wembley gegn Liverpool. Guðni rifjar upp fyrsta tímabilið
.. show full overview
Guðni Bergsson var hættur í enska boltanum þegar hann fékk tilboð frá Bolton vorið 1995 og fyrsti leikurinn var úrslitaleikur á Wembley gegn Liverpool. Guðni rifjar upp fyrsta tímabilið í úrvalsdeildinni með Bolton, eftirminnileg mörk og skemmtilegar rimmur við Shearer og Wright.
Lárus Orri Sigurðsson spilaði eitt tímabil í ensku úrvalsdeildinni með West Bromwich Albion. Þar beið hans viðureign við stjörnulið Manchester United og eftirminnileg einvígi við barnungan Wayne Rooney og ótrúlegan Thierry Henry.
Lárus Orri Sigurðsson spilaði eitt tímabil í ensku úrvalsdeildinni með West Bromwich Albion. Þar beið hans viðureign við stjörnulið Manchester United og eftirminnileg einvígi við barnungan Wayne Rooney og ótrúlegan Thierry Henry.
Eiður Smári átti frábært tímabil með Chelsea 2001-02 þegar hann stymplaði sig inn í byrjunarliðið og skoraði 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Þar af komu 10 mörk í 11 leikja hrinu í desember og janúar.
Eiður Smári átti frábært tímabil með Chelsea 2001-02 þegar hann stymplaði sig inn í byrjunarliðið og skoraði 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Þar af komu 10 mörk í 11 leikja hrinu í desember og janúar.
Þórður Guðjónsson sló í gegn í Belgíu og átti fund með Gérard Houllier, stjóra Liverpool, sumarið 2000 en ákvað að bíða ekki eftir tilboði og fór í spænsku deildina. Hann var nokkrum
.. show full overview
Þórður Guðjónsson sló í gegn í Belgíu og átti fund með Gérard Houllier, stjóra Liverpool, sumarið 2000 en ákvað að bíða ekki eftir tilboði og fór í spænsku deildina. Hann var nokkrum mánuðum síðar lánaður til Derby County og lék 10 leiki í ensku úrvalsdeildinni og skoraði 1 mark.
Ívar Ingimarsson var lykilmaður í liði Reading sem komst í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildina 2006. Allir spáðu liðinu falli en það endaði í baráttu um Evrópusæti. Ívar rifjar upp fyrstu
.. show full overview
Ívar Ingimarsson var lykilmaður í liði Reading sem komst í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildina 2006. Allir spáðu liðinu falli en það endaði í baráttu um Evrópusæti. Ívar rifjar upp fyrstu heimaleiki Reading á tímabilinu þar sem liðið sýndi hvað í það var spunnið.
Aron Einar Gunnarsson rifjar upp fyrsta tímabil Cardiff City í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann skráði nafn sitt á spjöld sögunnar með því að skora fyrsta félagsins í úrvalsdeildinni.
.. show full overview
Aron Einar Gunnarsson rifjar upp fyrsta tímabil Cardiff City í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann skráði nafn sitt á spjöld sögunnar með því að skora fyrsta félagsins í úrvalsdeildinni. Fljótlega fór að halla undan fæti og það voru mikil læti á bak við tjöldin.
Haukur Ingi Guðnason þurfti að velja á milli Liverpool og Arsenal haustið 1997. Hann valdi Liverpool og komst strax inn í aðalliðshópinn þar sem hann var að berjast við Michael Owen, Robbie Fowler og Karl Heinz Riedle um sæti í liðinu.
Haukur Ingi Guðnason þurfti að velja á milli Liverpool og Arsenal haustið 1997. Hann valdi Liverpool og komst strax inn í aðalliðshópinn þar sem hann var að berjast við Michael Owen, Robbie Fowler og Karl Heinz Riedle um sæti í liðinu.
Brynjar Björn Gunnarsson var að verða þrítugur þegar hann komst upp í úrvalsdeildina með Reading fyrir tímabilið 2006-07. Hann átti frábæran leik og skoraði eftirminnilegt mark þegar Reading valtaði yfir West Ham, sem þá var í eigu Íslendinga.
Brynjar Björn Gunnarsson var að verða þrítugur þegar hann komst upp í úrvalsdeildina með Reading fyrir tímabilið 2006-07. Hann átti frábæran leik og skoraði eftirminnilegt mark þegar Reading valtaði yfir West Ham, sem þá var í eigu Íslendinga.
Gylfi Sigurðsson gekk til liðs við Tottenham sumarið 2012 en átti erfitt uppdráttar í byrjun. Hann skoraði ekki fyrr en í febrúar og þá fór að birta til. Hann rifjar einnig upp
.. show full overview
Gylfi Sigurðsson gekk til liðs við Tottenham sumarið 2012 en átti erfitt uppdráttar í byrjun. Hann skoraði ekki fyrr en í febrúar og þá fór að birta til. Hann rifjar einnig upp eftirminnilegan Lundúnarslag gegn Arsenal þar sem hann og Gareth Bale náðu vel saman.
Þorvaldur Örlygsson var fyrstur til að skora í ensku úrvalsdeildinni eftir að deildin var stofnuð árið 1992. Auk þess að rifja upp markið, segir hann frá liðsfélögum og skemmtilegu
.. show full overview
Þorvaldur Örlygsson var fyrstur til að skora í ensku úrvalsdeildinni eftir að deildin var stofnuð árið 1992. Auk þess að rifja upp markið, segir hann frá liðsfélögum og skemmtilegu atviki á Highbury þar sem hann aðstoðaði Brian Clough, stjóra Nottingham Forest, við að baða sig.
Arnar Gunnlaugsson sló í gegn með Bolton í B-deildinni og var seldur til Leicester í byrjun árs 1999 fyrir hæstu upphæð sem þá hafði verið borguð fyrir Íslending. Colin Todd, stjóri
.. show full overview
Arnar Gunnlaugsson sló í gegn með Bolton í B-deildinni og var seldur til Leicester í byrjun árs 1999 fyrir hæstu upphæð sem þá hafði verið borguð fyrir Íslending. Colin Todd, stjóri Bolton, reyndi að láta Arnar lýta illa út í augum stuðningsmanna Bolton. Hjá Leicester tóku við honum félagar sem hugsuðu mikið um að skemmta sér.
Heiðar Helguson sneri aftur í ensku úrvalsdeildina árið 2005 eftir fimm ára fjarveru. Hann var við það að skrifa undir hjá Wigan þegar Fulham hafði samband og keypti hann frá Watford.
.. show full overview
Heiðar Helguson sneri aftur í ensku úrvalsdeildina árið 2005 eftir fimm ára fjarveru. Hann var við það að skrifa undir hjá Wigan þegar Fulham hafði samband og keypti hann frá Watford. Eftir erfiða byrjun hjá Fulham náði Heiðar að sýna hvað í honum bjó og skoraði hvert markið af öðru.
Ívar Ingimarsson var valinn leikmaður ársins tímabilið 2006-07 sem var fyrsta tímabili Reading í ensku úrvalsdeildinni. Félagið átti góðan möguleika á að komast í Evrópukeppni en fór
.. show full overview
Ívar Ingimarsson var valinn leikmaður ársins tímabilið 2006-07 sem var fyrsta tímabili Reading í ensku úrvalsdeildinni. Félagið átti góðan möguleika á að komast í Evrópukeppni en fór frekar í skemmtiferð til Spánar en að undirbúa sig fyrir mikilvægan leik.
Jeśli brakuje odcinków lub banerów (a znajdują się w TheTVDB) możesz zgłosić serial do automatycznej aktualizacji:
Zgłoś serial do aktualizacji
Aktualizacja zgłoszona