Stiklur
Undir Vaðalfjöllum (1x8)
:
Fyrsti þáttur af þremur þar sem stiklað er um Austur-Barðastrandarsýslu. Hún er fámennasta sýsla landsins og byggð á í vök að verjast vestan Þorskafjarðar, en fegurð landsins er sérstæð. Þessi þáttur er úr Reykhólasveit.
Myndataka: Helgi Sveinbjörnsson. Hljóð: Agnar Einarsson. Umsjón: Ómar Ragnarsson.