Kveikur

Lífshættulegt e.coli í leikskóla (8x5)


Data di messa in onda: Gen 21, 2025

Hátt í fimmtíu börn veiktust eftir að hafa borðað e.coli-mengaðan mat í leikskólanum Mánagarði í október. Líf nokkurra barna hékk á bláþræði eftir matarsýkinguna. Matráður leikskólans hafði ekki hlotið neina menntun eða fræðslu um öryggi matvæla. Orsök hópsmitsins er rakin til rangs verklags við matreiðslu og geymslu á matnum. Kveikur fylgir eftir fjölskyldu stúlkunnar sem veiktist mest. Foreldrarnir segjast í viðtali hafa kvatt stúlkuna þegar hún var í algjörri lífshættu. Stúlkan og um tugur barna til viðbótar verður undir eftirliti lækna ævina á enda. Þrátt fyrir árlegar heimsóknir heilbrigðiseftirlits varð það þess aldrei áskynja að verklag í eldhúsinu stofnaði lífi barna í hættu.

  • Posizione #
  • Iniziato: Nov 2017
  • Episodi: 125
  • Followers: 0
  • In corso
  • RÚV
  • alle 0